Skoðun

Traustur efnahagur og spennandi störf

Einar Bergmundur skrifar
Lyft hefur verið grettistaki við stjórn efnahagsmála og ríkisfjármála á þessu kjörtímabili við fordæmalaust erfiðar aðstæður. Rekstur ríkissjóðs er nú kominn í jafnvægi, en ljóst er að þar þarf að gæta aðhalds næstu ár til að ríkið geti greitt niður skuldir. Þá tekur að draga úr vaxtagreiðslum og meiru verður hægt að verja í velferð og uppbyggingu. Samhliða þarf að örva hagkerfið, líkt og lagt hefur verið upp með í fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar, og ýta þannig undir hagvöxt sem byggir á fjölbreyttum atvinnurekstri.

Fjárfesting í rannsóknum og nýsköpun mun skapa fjölbreytt störf og nýjan auð. Sama má segja um fjárfestingu í skapandi greinum.Verkefni á sviði kynjaðrar hagstjórnar hafa veitt mikilvægar upplýsingar um samfélagsleg áhrif fjárlaga og er brýnt að halda áfram innleiðingu hennar.

Verkefnin framundan í efnahagsmálum eru ærin. Meðal annars þarf að losa um aflandskrónur samkvæmt þeirri áætlun sem samþykkt hefur verið og gerir ráð fyrir útgönguskatti á þá fjármuni. Lykilorðin verða aðhaldssemi og örvun án þess að

gengið sé á ósjálfbæran hátt á auðlindir landsins.

Að loknum erfiðum niðurskurði og breytingum á skattkerfinu, jafnt til tekjuöflunar og aukins jafnaðar í senn, hefur stöðugleiki náðst. Velferðarstjórnin kom á þrepaskiptu skattkerfi þannig að hinir tekjuhæstu beri hlutfallslega meiri byrðar en þeir sem minnst hafa á milli handanna eins og tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Vinstri græn munu verja þrepaskipta skattkerfið með kjafti og klóm, hvort heldur í stjórn eða stjórnarandstöðu.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð vill auka lýðræði innan fyrirtækja og stofnana þannig að starfsfólk kjósi fulltrúa í stjórnir og umboð stjórnenda verði endurnýjað reglulega. Gera þarf breytingar á lögum um samvinnufélög til að tryggja rekstrarform fyrirtækja sem byggð eru upp á lýðræðislegan hátt. Við Vinstri græn viljum sjá fjölbreytt atvinnulíf með öflugu og ánægðu starfsfólki.

Á Íslandi eru góðar aðstæður – og full ástæða – til að halda áfram að efla hér og þróa farsælt og gott velferðarsamfélag, samfélag fjölbreytni, menningar og fyllstu mannréttinda. Framtíðin er björt, bæði fyrir okkur og arftaka okkar. Við Vinsti græn stefnum á sjálfbært Ísland!




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×