Sport

LeBron og Serena eru Íþróttafólk ársins hjá AP

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James og Serena Williams.
LeBron James og Serena Williams. Mynd/NordicPhotos/Getty
Körfuboltamaðurinn LeBron James og tenniskonan Serena Williams voru valin íþróttakarl og íþróttakona ársins af AP-fréttstofunni. Bæði voru þau afar sigursæl á árinu og að mörgum talin vera þau bestu í heimi í sinni grein.

Serena Williams vann 78 af 82 leikjum sínum (95 prósent) og alls ellefu mót á árinu. Hún vann tvö risamót, opna franska og opna bandaríska, og hefur þar með unnið 17 risamót á ferli sínum.

Í febrúarmánuði varð hin 32 ára gamla Serena elsta konan til að sitja í efsta sæti heimslistans en hún hélt því sæti út árið. Þetta er þriðja sinn sem AP-fréttstofan velur hana íþróttakonu ársins en hún hlaut þessa útnefningu einni 2002 og 2009.

Serena Williams fékk 55 af 96 atkvæðum en í öðru sæti varð körfuboltakonan  Brittney Griner (14 atkvæði) sem tróð grimmt á sínu fyrsta ári í WNBA-deildinni. Sundkonan Missy Franklin varð síðan í þriðja sæti með tíu atkvæði.

LeBron James varð NBA-meistari annað árið í röð með Miami Heat en hann var bæði kosin besti leikmaður deildarinnar og besti leikmaður lokaúrslitanna. James hefur spilað 98 leiki með Miami á árinu og liðið hefur unnið 78 þeirra.

LeBron James fékk 31 af 96 atkvæðum í boði en í öðru sæti varð NFL-leikmaðurinn Peyton Manning með 20 atkvæði. Í þriðja sætinu varð síðan NASCAR-ökumaðurinn Jimmie Johnson.

Það hafa aðeins tveir aðrir körfuboltamenn hlotið þessa útnefningu hjá AP-fréttstofunni en það eru ekki minni menn en þeir Michael Jordan og Larry Bird.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×