Fótbolti

Moyes: Stefnum á sigur í keppninni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
David Moyes.
David Moyes. Nordicphotos/Getty
„Við vildum ná toppsætinu og það tókst. Sigurinn hjálpar okkur og bætir form okkar,“ sagði David Moyes eftir sigurinn á Shaktar Donetsk í kvöld.

Phil Jones skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik. Sigurinn tryggði United toppsæti A-riðils Meistaradeildar Evrópu en Shaktar hafnaði í þriðja sæti. Moyes var mun sáttari við spilamennsku liðsins í síðari hálfleik eftir markalausan fyrri hálfleik.

„Félag eins og Manchester United stefnir alltaf á sigur í keppninni. Það er starf leikmanna liðsins,“ sagði Moyes. Hann viðurkenndi þó að verkefnið væri erfitt og einn leikur yrði tekinn fyrir í einu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×