Fótbolti

Stuðningsmenn Ajax stungnir með hníf

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/AFP
Óeirðir brutust út í Mílanó í kvöld fyrir viðureign AC Milan og Ajax í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Þrír stuðningsmenn hollenska liðsins voru stungnir með hnífi í slagsmálum og slasaðist einn þeirra alvarlega hefur Reuters eftir ítölsku lögreglunni.

Stuðningsmenn Ajax eiga að hafa slegist við stuðningsmenn Mílanóliðsins og einnig mótmælendur ríkisstjórnar Enrico Letta í allan dag. Sá sem varð fyrir alvarlegustu meiðslunum var stunginn í magann. Hinir særðust á afturenda og fótlegg. Enginn þeirra er í lífshættu.

Þá voru þrír aðrir stuðningsmenn Ajax handteknir fyrir að ræna úr smávörubúð í Mílanó í dag.

Leikur AC Milan og Ajax stendur yfir þessa stundina. Staðan í hálfleik er markalaus en Ajax er manni fleiri. Kolbeinn Sigþórsson er á varamannabekk Hollandsmeistaranna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×