Fótbolti

Ronaldo: Bale mun hjálpa okkur að vinna titla

Bale og Ronaldo fagna saman.
Bale og Ronaldo fagna saman.
Dýrasti knattspyrnumaður heims, Gareth Bale, átti erfitt uppdráttar er hann kom fyrst til Real Madrid en er allur að koma til.

Félagi hans hjá Real, Cristiano Ronaldo, er hæstánægður með Walesverjann sem er á stöðugri uppleið hjá sínu nýja félagi. Hann er nú búinn að skora níu mörk í þrettán leikjum.

"Það er til fyrirmyndar hvernig Gareth hefur staðið sig. Hann lenti í smá vandræðum fyrst eftir að hann kom með meiðsli og annað. Það var eðlilegt því hann missti af undirbúningstímabilinu," sagði Ronaldo.

"Hann er orðinn betri og smellur mjög vel inn í liðið. Leikmenn og stuðningsmenn elska hann. Hann er frábær leikmaður sem mun hjálpa okkur að vinna titla."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×