Fótbolti

Arsenal á toppinn og Ajax á enn möguleika | Úrslit kvöldsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Kolbeinn Sigþórsson á enn möguleika á að spila í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu þökk sé frábærum sigri Ajax á Barcelona í kvöld.

Kolbeinn missti af leiknum í kvöld vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í landsleiknum gegn Króatíu á Laugardalsvelli fyrr í mánuðinum. Lionel Messi, stórstjarna Barcelona, var heldur ekki með vegna meiðsla.

Hollendingarnir nýttu sér fjarveru Messi til hins ítrasta og komust í 2-0 forystu áður en fyrri hálfleikur var flautaður af. Joel Veltman fékk svo að líta rauða spjaldið í upphafi síðari hálfleiks og Xavi minnkaði muninn úr vítaspyrnu.

En nær komst Barcelona ekki en liðið er þrátt fyrir tapið enn á toppi riðilsins með tíu stig. Börsungar eru öruggir með sæti í 16-liða úrslitum en það verður hreinn úrslitaleikur á milli AC Milan og Ajax í lokaumferð riðlakeppninnar þann 11. desember næstkomandi um hvort liðið fylgi spænsku risunum áfram.

AC Milan dugir jafntefli í leiknum þar sem liðið er með átta stig eftir öruggan 3-0 sigur á Celtic í kvöld. Ajax komst upp í sjö stig með sigrinum í kvöld.

Jack Wilshere skoraði sína fyrstu tvennu fyrir Arsenal í kvöld er liðið hafði betur gegn Marseille á heimavelli, 2-0. Arsenal er á toppi F-riðils en Dortmund og Napoli eru bæði með níu stig.

Wilshere skoraði fyrra mark sitt í kvöld eftir aðeins 32 sekúndur. Mesut Özil fékk svo tækifæri til að auka muninn en slök vítaspyrna hans var varin. Wilshere tryggði svo sigur Arsenal í síðari hálfleik.

Dortmund og Napoli geta jafnað Arsenal að stigum í lokaumferðinni og ræður þá árangur í innbyrðisviðureignum þessara þriggja liða því hvaða tvö komast áfram í 16-liða úrslitin.

Dortmund hafði betur gegn Napoli, 3-1, í Þýskalandi í kvöld þar sem að heimamenn óðu í færum.

Chelsea tapaði fyrir Basel í Sviss, 1-0, en tryggði engu að síður sæti sitt í 16-liða úrslitum keppninnar þar sem að Schalke gerði markalaust jafntefli við Steaua Búkarest í hinum leik riðilsins.

Úrslit

E-riðill

Basel - Chelsea 1-0

1-0 Mohamed Salah (87.).

Steaua Búkarest - Schalke 0-0

Staðan: Chelsea 9, Basel 8, Schalke 7, Steaua Búkarest 3.

F-riðill

Arsenal - Marseille 2-0

1-0 Jack Wilshere (1.), 2-0 Jack Wilshere (65.).

Dortmund - Napoli 3-1

1-0 Marco Reus, víti (10.), 2-0 Jakub Blaszczykowski (60.), 2-1 Lorenzo Insigne (71.), 3-1 Pierre-Emerick Aubemeyang (78.).

Staðan: Arsenal 12, Dortmund 9, Napoli 9, Marseille 0.

G-riðill

Zenit - Atletico Madrid 1-1

0-1 Adrian (53.), 1-1 Toby Alderweireld, sjálfsmark (74.).

Porto - Austria Vín 1-1

0-1 Roman Kienast (11.), 1-1 Jackson Martinez (48.)

Staðan: Atletico Madrid 13, Zenit 6, Porto 4, Austria Vín 2.

H-riðill

Celtic - AC Milan 0-3

0-1 Kaka (13.), 0-2 Cristian Zapata (49.), 0-3 Mario Balotelli (59.).

Ajax - Barcelona 2-1

1-0 Thulani Serero (19.), 2-0 Danny Hoesen (41.), 2-1 Xavi, víti (49.).

Rautt spjald: Joel Veltman, Ajax.

Staðan: Barcelona 10, AC Milan 8, Ajax 7, Celtic 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×