Fótbolti

Rúrik gaf tóninn fyrir Króatíuleikinn með sleggju | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rúrik Gíslason skoraði stórglæsilegt mark fyrir FC Kaupmannahöfn í 1-1 jafntefli gegn Esbjerg á útivelli í dag.

Olof Mellberg skoraði mark Esbjerg eftir misskilning miðvarðarins við markvörðinn Johan Wiland. Rúrik jafnaði hins vegar með glæsilegu langskoti. Markið er eftir rétt rúmar tvær mínútur af myndbandinu að ofan.

Okkar maður heldur nú til Íslands þar sem hann hittir fyrir strákana okkar hér á landi á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×