Fótbolti

Þóra valin besti markvörðurinn í Svíþjóð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þóra Björg Helgadóttir.
Þóra Björg Helgadóttir. Mynd/Heimasíða LdB Malmö
Landsliðsmarkvörðurinn Þóra Björg Helgadóttir var í kvöld kjörin besti markvörður sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Valið var kunngjört á árlegu hófi knattspyrnufólks í Svíþjóð. Nilla Fischer var valin besti varnarmaður, Ramona Bachmann besti miðjumaður og Lotta Schelin besti sóknarmaðurinn.

Þóra og félagar hjá LdB Malmö urðu sænskir meistarar á dögunum. Þóra hélt hreinu í 14 af 21 leik liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×