Körfubolti

Dramatísk sigurkarfa hjá Hauki og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. Mynd/Daníel
Haukur Helgi Pálsson og félagar í CB Breogan unnu dramatískan tveggja stiga sigur í nágrannaslag á móti CB Ourense, 62-60, í spænsku b-deildinni í körfubolta í kvöld.

Haukur var með 6 stig, 4 fráköst og 3 fiskaðar villur á tæpum 20 mínútum í leiknum en hann tapaði reyndar fjórum boltum. Haukur hitti úr 2 af 4 skotum sínum utan af velli og eina víti sínu.

Bandaríkjamaðurinn Tyrus McGee skoraði sigurkörfu Breogan aðeins þremur sekúndum fyrir leikslok.

Breogan hefur unnið fimm af fyrstu sex leikjum sínum í deildinni og liðið er í efsta sæti ásamt BC Andorra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×