Jakob með 24 stig í seinni hálfleik í sigri Drekanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2013 18:54 Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Valli
Íslensku landsliðsmennirnir í liði Sundsvall Dragons voru mennirnir á bak við þriggja stiga útisigur á Solna Vikings, 93-90, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Drekarnir fengu 49 stig, 16 fráköst og 13 stoðsendingar frá Íslendingunum sínum en enginn þeirra var betri en Jakob Örn Sigurðarson sem var hreinlega óstöðvandi í seinni hálfleiknum. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 29 stig þar af komu 24 þeirra í seinni hálfleiknum. Jakob var einnig með 3 stoðsendingar á félaga sína. Hlynur Bæringsson skoraði aftur á móti 14 af 20 stigum sínum í fyrri hálfleik og bætti við þau 9 fráköst og 3 stoðsendingar. Ægir Þór Steinarsson náði ekki að skora en átti sjö stoðsendingar þar af þrjár þeirra á Jakob (2) og Hlyn (1). Ægir var einnig með 5 fráköst Hlynur hitti úr 6 af 8 skotum sínum í leiknum og Jakob nýtti 9 af 14 skotum sínum og þeir félagar voru því með 68 prósent skotnýtingu saman (15 af 22). Sundsvall Dragons var skrefinu á undan allan leikinn en náði aldrei að rífa sig almennilega frá Solna-liðinu. Sundsvall komst níu stigum yfir í öðrum leikhlutnum en var bara þremur stigum yfir í hálfleik, 43-40. Jakob var allt í öllu á lokakafla leiksins og skoraði alls 16 stig af 28 stigum Sundsvall-liðsins í fjórða leikhlutanum.
Körfubolti Mest lesið Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Handbolti Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Fótbolti Wendell Green rekinn frá Keflavík Körfubolti Köstuðu svínshöfði inn á völlinn Fótbolti Dauðvona maður kláraði heilan járnkarl Sport Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Körfubolti BKG kveður keppinaut: CrossFit á viðkvæmum stað Sport Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Handbolti Sextán ára undrabarnið sem minnir á Bolt Sport „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Enski boltinn Fleiri fréttir Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“ Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“ Uppgjörið: Keflavík - KR 94-88 | Langþráður Keflavíkursigur „Vildi sýna þeim að þeir væru ekki að fara ná þessu svona auðveldlega“ Uppgjörið: Þór Þ. - Haukar 82-81 | Þórsarar gerðu Haukum grikk með naumum sigri Mahomes vill eignast lið í WNBA og koma með það til Kansas City Kane reyndi að róa menn meðan sjúkraþjálfari ýtti leikmanni Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 104-98 | Stjörnumenn taplausir á toppi deildarinnar Viðar um vandræði Hattar: „Hugarfarslegt og andlegt, þetta er á báðum endum vallarins“ „Sóknarlega vorum við að taka alveg kexaðar ákvarðanir oft á tíðum“ „Vorum ógeðslega góðir sóknarlega í tvo leikhluta“ Sjá meira