Fótbolti

Þór/KA úr leik í Meistaradeildinni

Sandra María Jessen og Jóhann Kristinn þjálfari.
Sandra María Jessen og Jóhann Kristinn þjálfari.
Þór/KA er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap, 4-1, gegn Zorkiy í Rússlandi í dag. Þór/KA tapaði rimmunni samanlagt, 6-2.

Fyrri leik liðanna lyktaði með 1-2 sigri rússneska liðsins og því áttu Norðanstúlkur möguleika í leiknum í dag.

Þær héldu út í rúmar 20 mínútur en þá skoraði rússneska liðið þrjú mörk á tólf mínútum og gerði út um leikinn.

Arna Sif Ásgrímsdóttir klóraði í bakkann í síðari hálfleik en það dugði lítt því heimastúlkur bættu við fjórða markinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×