Fótbolti

Moyes: Auðvitað setjum við stefnuna á sigur í Meistaradeildinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Moyes með liðinu á æfingu í gær
David Moyes með liðinu á æfingu í gær nordicphotos/gettyimages
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, setur stefnuna á sigur í Meistaradeild Evrópu á þessu tímabili.

Liðið hefur fariðs skelfilega illa af stað í ensku deildinni og hefur aðeins sjö stig í tólfta sætinu. United hefur tvívegis unnið Meistaradeild Evrópu og setur Skotinn stefnuna á þriðja titilinn.

United mætir Shakhtar Donetsk í Úkraínu í G-riðlinum í kvöld.

„Auðvitað ætlum við að reyna vinna Meistaradeildina,“ sagði Moyes.

„Það er bara partur af því að vera stjóri United, að reyna komast alla leið í öllum keppnum.“

„Rio [Ferdinand] er tæpur í nára, ekkert alvarlegt en hann mun ekki taka þátt í leiknum í kvöld.“

Anderson, Fabio og Wilfried Zaha ferðuðust heldur ekki með liðinu til Úkraínu en Robin van Persie mun vera klár í slaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×