Íslenski boltinn

Dæmir í Meistaradeild ungmenna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þóroddur Hjaltalín dæmir fyrir Samherja.
Þóroddur Hjaltalín dæmir fyrir Samherja. Mynd/Daníel
Þóroddur Hjaltalín mun dæma leik Dortmund og Marseille í Meistaradeild ungmenna sem UEFA heldur samhliða Meistaradeild UEFA.  

Þar mætast ungmennalið sömu félaga og mætast í Meistaradeildinni sjálfri.  Leikið verður í Dortmund, þriðjudaginn 1. október.

Þóroddi til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Ásgeir Þór Ásgeirsson að því er fram kemur á heimasíðu KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×