Fótbolti

Oscar og Lampard byrja í kvöld

Mourinho fagnar með Chelsea.
Mourinho fagnar með Chelsea. vísir/getty
Það eru allir leikmenn Chelsea klárir í slaginn fyrir leik liðsins gegn svissneska liðinu Basel í Meistaradeildinni í kvöld.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur þegar staðfest að þeir Frank Lampard og Oscar munu byrja leikinn í kvöld.

Chelsea vann keppnina árið 2012 en komst ekki upp úr riðlakeppninni í fyrra. Var það í fyrsta skipti sem meistara hrasa svo hraustlega í keppninni.

Chelsea tapaði 1-0 gegn Everton í deildinni um síðustu helgi en það tap hvetur Mourinho til dáða.

"Það er mjög gaman að vera aftur kominn til þessa félags og berjast fyrir það. Þetta er keppnin sem allir vilja vinna og það er mikilvægt fyrir félagið að komast upp úr riðlinum," sagði Mourinho.

"Basel er mjög erfiður andstæðingur. Þetta lið hefur lagt bæði Man. Utd og Tottenham á síðustu tveim árum. Chelsea þekkir það núna að vinna keppnina og þegar menn hafa gert það þá dreymir þá um að vinn aftur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×