Finnar komnir áfram eftir sigur í tvíframlengdum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2013 21:25 Finnar fagna sigri og sæti í millirðli. Mynd/AFP
Finnar halda áfram að standa sig vel á Evrópumótinu í körfubolta karla í Slóveníu en Finnar tryggðu sér sæti í milliriðli með 86-83 sigri á Rússum í tvíframlengdum leik í dag. Úrslitin þýða að Rússar eru úr leik á mótinu. Úrslitin eru ráðin í D-riðli því Ítalía og Grikkland eru líka komin áfram eins og Finnland. Tyrkland, Svíþjóð og Rússland eru úr leik. Sigur Finna á Rússum var þriðji sigur liðsins í fjórum leikjum á mótinu og þeir eru komnir áfram þrátt fyrir að ein umferð sé enn eftir. Finnska liðið lenti undir í bæði venjulegum leiktíma sem og framlengingunni en kom til baka og náði að tryggja sér frábæran sigur. Rússar unnu bronsið á Ólympíuleikunum í London fyrir ári síðan en mættu á mótið án lykilmanna og þar á meðal var Andrei Kirilenko, framherji Minnesota Timberwolves. Shawn Huff skoraði 20 stig fyrir Finna og þeir Tuukka Kotti og Sasu Salin voru báðir með 12 stig og 10 fráköst. Aleksey Shved skoraði 25 stig fyrir Rússa. Reynsluboltinn Hanno Möttölä tryggði Finnum framlengingu á vítalínunni og skoraði síðan mikilvægan þrist í seinni framlengingunni. Ítalir eru búnir að vinna alla sína leiki á mótinu en þeir unnu 81-72 sigur á Grikkjum í dag. Grikkir voru búnir að vinna alla þrjá leiki sína fyrir leikinn alveg eins og Ítalir. Marco Belinelli, bakvörður Chicago Bulls, skoraði 23 stig fyrir Ítala. Ítalir eru komnir áfram og Grikkir líka þrátt fyrir tapið.
Körfubolti Mest lesið Versta byrjun í sögu efstu deildar Fótbolti Forsetinn Eto‘o fær ekki að mæta á leiki þjóðar sinnar Fótbolti Brasilíski miðvörðurinn gríðarlega eftirsóttur Fótbolti Kolbeinn með glæsimark í sigri Gautaborgar Fótbolti Hilmar Árni: Þurftum að vinna, gerðum það og svo bara næsti leikur Íslenski boltinn Ætla að sniðganga leikinn við Víking Fótbolti Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Enski boltinn Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Enski boltinn Lilja tognuð á ökkla og frá næsta mánuðinn Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira