Fótbolti

Ramsey: Við komum sterkir til baka í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aaron Ramsey og félagar fagna í kvöld.
Aaron Ramsey og félagar fagna í kvöld. Mynd/AFP
Arsenal-mennirnir Theo Walcott og Aaron Ramsey voru kátir eftir 3-0 útisigur á Fenerbahce í kvöld í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

„Við skoruðu þrjú frábær mörk og þetta eru frábær úrslit sem við tökum með okkur inn í seinni leikinn á Emirates," sagði Theo Walcott sem lagði upp tvö af þremur mörkum Arsenal.

„Við byrjuðum ekki eins og við vildum í úrvalsdeildinni en komum sterkir til baka í kvöld. Við höfum mátt þola gagnrýni en héldum einbeitingu og létum þá gagnrýni ekki trufla okkur. Ég hef mikla trú á liðinu," sagði Aaron Ramsey sem átti stóran þátt í fyrsta markinu og skoraði síðan mark númer tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×