Sport

Bolt örugglega í undanúrslitin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bolt þykir afar sigurstranglegur í 100 metra hlaupinu.
Bolt þykir afar sigurstranglegur í 100 metra hlaupinu. Nordicphotos/Getty
Jamaíkamaðurinn Usain Bolt hafði lítið fyrir því að tryggja sér sæti í undanúrslitum í 100 metra hlaupi á HM í frjálsum íþróttum í Moskvu í dag.

Fótfráasti maður heims náði strax forystu í hlaupinu og gat leyft sér að slaka á seinni hlutann. Hann skilaði sér í mark á 10,07 sekúndum.

Bolt átti sjöunda besta tíma þeirra hlaupara sem tryggðu sér sæti í undanúrslitunum sem fara fram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×