Sport

Fraser-Pryce rúllaði upp 100 metra hlaupinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shelly-Ann Fraser-Pryce hér til hægri í hlaupinu í gær.
Shelly-Ann Fraser-Pryce hér til hægri í hlaupinu í gær. Mynd / Getty Images
Shelly-Ann Fraser-Pryce, Jamaíku,  kom sá og sigraði í 100 metra hlaupi kvenna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í gær en mótið fer fram í Moskvu. 

Fraser-Pryce kom langfyrst í mark á tímanum 10,71 sekúndum, rétt frá sínu persónulega meti.

Murielle Ahoure, Fílabeinsströndinni, hafnaði í öðru sæti í hlaupinu  á 10,93 sekúndum og Carmelita Jeter, Bandaríkjunum, varð þriðja á 10,94.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×