Fótbolti

Leikur KR og Glentoran í beinni útvarpslýsingu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þröstur Emilsson (t.v.) verður í Belfast og Bogi Ágústsson (t.h.) ásamt Denna í KR-heimilinu.
Þröstur Emilsson (t.v.) verður í Belfast og Bogi Ágústsson (t.h.) ásamt Denna í KR-heimilinu.
KR-útvarpið verður með beina útsendingu frá síðari viðureign KR og Glentoran í undankeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu síðdegis.

Leikurinn hefst klukkan 17.30 en fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli. Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri KR, lýsir leiknum.

Útvarp KR sendir út á tíðninni FM 98,3 en einnig er hægt að hlusta á netinu á www.netheimur.is. Þá er hægt að nálgast útsendinguna í iPhone, iPad, iPod og Android snjallsímum.

Um er að ræða 378. útsendingu útvarpsins frá leikjum KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×