Fótbolti

Marko Marin fer á lán til Sevilla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Marko Marin í Chelsea treyjunni
Marko Marin í Chelsea treyjunni Mynd / Getty Images
Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur tilkynnt að Marko Marin, leikmaður félagsins, mun fara á lán til Sevilla á næstu leiktíð.

Þessi þýski landsliðsmaður hafði nýverið gefið út í fjölmiðlum að hann hefði áhyggjur af framtíð sinni hjá félaginu og nú hefur hann fengið ákveðin svör við spurningunum.

Í yfirlýsingu frá félaginu segir:  „Chelsea og Sevilla hafa komist að samkomulagi að leikmaðurinn fari til Spánar á lán.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×