Bayern slátraði Barcelona og mætir Dortmund í úrslitum 1. maí 2013 12:51 Það var gaman að vera Bæjari á Nývangi í kvöld. Nordicphotos/AFP
Bayern München vann 3-0 sigur á Barcelona í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Bæjarar unnu spænska risann 7-0 samanlagt í tveimur leikjum. Lionel Messi var á varamannabekk Barcelona í kvöld sem veikti litla von heimamanna eftir niðurlæginguna í München fyrir viku. Strax frá upphafi varð ljóst að án töframannsins var möguleiki Börsunga á kraftaverki enginn. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en gestirnir reiddu til höggs snemma í síðari hálfleik. Arjen Robben skoraði þá glæsilegt mark og aftur fögnuðu Bæjarar á 72. mínútu þegar Gerard Pique skoraði sjálfsmark. Niðurlægingin var algjör fjórum mínútum síðar þegar Frank Ribery spólaði sig upp vinstri kantinn og sendi fyrir markið. Stórleikjamaðurinn Thomas Müller var mættur á fjærstöng og stangaði knöttinn í netið. Stuðningsmenn beggja lið klöppuðu Bæjurum lof í lófa enda engin spurning að betra liðið fór með sigur af hólmi. Samanlöguð úrslitin 7-0 eru eitthvað sem enginn í heiminum gat séð fyrir. Bayern München mætir Borussia Dortmund í úrslitaleik á Wembley þann 25. maí. Það verður í fyrsta skipti sem tvö þýsk lið mætast í úrslitum.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Sjá meira