Fótbolti

Messi: Ég var ekki meiddur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Lionel Messi segist hafa verið heill heilsu þegar að Barcelona mætti Bayern München í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.

Messi var ólíkur sjálfum sér og sást varla í leiknum. Bayern vann að lokum 4-0 sigur en liðin eiga enn eftir að spila á Nou Camp í Barcelona.

„Mér leið vel, nógu vel til að spila. Við þurfum að rífa okkur upp fyrir seinni leikinn og deildina. Við munum koma til baka,“ sagði Messi eftir leikinn í gær.

„Þeir voru mun sterkari en við og höfðu talsverða líkamlega yfirburði. Þetta er mikil synd en við verðum að halda áfram.“

Xavi, liðsfélagi Messi, viðurkenndi að Bayern hafi verið betra liðið í gær en félagið stefndi enn að því að komast í úrslitaleikinn.

„Við erum Barcelona og við verðum að reyna að komast í úrslitaleikinn. Við þurfum að spila frábærlega í seinni leiknum en við vitum samt að þetta verður nánast ómögulegt fyrir okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×