Fótbolti

Messi varð að kaupa hús nágrannans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Mynd/Nordic Photos/Getty
Lionel Messi á nú tvö hús á sama stað í Barcelona eftir deilur við nágranna hans urðu til þess að eina leiðin til að fá frið var að kaupa húsið af nágrannanum. Þetta kemur fram í spænska blaðinu Diario Gol.

Lionel Messi er hógvær maður að eðlisfari og heldur einkalífi sínu fyrir sig og fjölskylduna. Hann var því ekki hrifinn af ónæði nágrannans sem hélt hverja veisluna á fætur annarri.

Þegar umræddur nágranni hans var farinn að leigja áhugasömum herbergi þar sem þeir hinir sömu gátu njósnað um Messi, var hinsvegar nóg komið.

Messi reyndi fyrst að láta byggja vegg á milli húsanna en þegar á reyndi var það ekki nóg.

Messi ákvað því að kaupa húsið af nágrannanum sem hafði áður reynt að selja Argentínumanninum húsið en nágranninn var í peningavandræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×