Fótbolti

Fabregas svarar ásökunum Mourinho

Það er alvöru fótboltakvöld á Spáni en Barcelona og Real Madrid mætast þá í seinni leik liðanna í undanúrslitum spænska konungsbikarsins. Fyrri leik liðanna lyktaði með jafntefli, 1-1.

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er að sjálfsögðu að kynda bálið fyrir leikinn. Hann hefur gagnrýnt leikmenn Barcelona fyrir að tala of mikið um dómara.

Cesc Fabregas, leikmaður Barcelona, er ekki ánægður með þessi ummæli sem hann segir vera röng. Barcelona láti verkin tala á vellinum.

"Sem lið erum við ekki mikið fyrir að kvarta í fjölmiðlum. Það þarf alltaf að segja ákveðna hluti en við höfum kosið að gera það út á fótboltavellinum," sagði Fabregas.

Mourinho var þó ekki bara í því að gagnrýna því hann hrósaði Lionel Messi fyrir einstaka andlegan styrk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×