Fótbolti

Villa mætir á æfingu á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
David Villa hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að hann var fluttur þangað í gær með nýrnasteinakast.

Villa leikur með Barcelona á Spáni en fram kom á heimasíðu félagsins í dag að hann hafi verið útskrifaður af sjúkrahúsinu.

Hann mun mæta á æfingu á morgun og á því möguleika á að spila með liðinu gegn Granada í spænsku úrvalsdeildinni um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×