Fótbolti

Messi kláraði Granada

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona vann fínan sigur, 2-1, á Granada í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli Granada.

Fyrsta mark leiksins kom á 26. mínútu þegar  Odion Ighalo skoraði fyrir heimamenn.

Staðan var 1-0 í hálfleik og staðan nokkuð góð fyrir heimamenn. Þá var komið að besta fótboltamanni heims, Lionel Messi, en hann jafnaði metin þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik.

Messi var aftur á ferðinni rúmlega fimmtán mínútum fyrir leikslok þegar hann kom gestunum yfir með flottu marki.

Leiknum lauk með sigri Barcelona sem eru í efsta sæti deildarinnar með 65 stig, 15 stigum á undan næsta liði.

Staðan í spænsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×