Fótbolti

Ramos: Rauða spjaldið ósanngjarnt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Sergio Ramos fékk tvær áminningar sömu mínútunni þegar að Real vann 2-0 sigur á Rayo Vallecano í gærkvöldi.

Hann segir að rauða spjaldið, sem var hans sextánda á ferlinum hjá Real Madrid, hafi verið ósanngjarnt.

„Þetta finnst mér sárt. Það þykir eðlilegt að ég sé rekinn út af með þessum hætti. Ég stunda það ekki að fara í harkalegar tæklingar eða gera eitthvað illt af mér. Það er afar auðvelt að reka Sergio Ramos af velli. Það er áhyggjuefni," sagði Ramos við spænska fjölmiðla.

„Spænski fótboltinn á skilið að vera með bestu dómarana vegna þess við erum með bestu leikmennina."

„Fyrra gula spjaldið mitt var algjörlega ósanngjarnt. Það er ekki hægt að skilja liðið sitt eftir manni færri út af svona löguðu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×