Fótbolti

Barcelona mætir Real Madrid í undanúrslitum bikarsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Iniesta fagnar marki sínu í kvöld.
Iniesta fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Barcelona tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar með 6-4 samanlögðum sigri á Malaga.

Barcelona mætir nú Real Madrid í undanúrslitum keppninnar og fer fyrri leikurinn fram í næstu viku. Sá síðari er á dagksrá í lok febrúar.

Fyrri leik Barcelona og Malaga lauk með 2-2 jafntefli á Nou Camp, heimavelli Barcelona.

Börsungar byrjuðu betur í kvöld og komust yfir með marki Pedro á áttundu mínútu en Joaqui jafnaði aðeins fjórum mínútum síðar.

Gerard Pique kom svo Barcelona aftur yfir í upphafi síðari hálfleiks en aftur náði Malaga að jafna. Roque Santa Cruz var þar að verki.

Barcelona tryggði sér svo sigurinn með tveimur mörkum með stuttu millibili undir lok leiksins. Fyrst skoraði Andres Iniesta á 76. mínútu og Lionel Messi innsiglaði sigurinn fjórum mínútum síðar.

Í hinni undanúrslitarimmunni mætast Atletico Madrid og Sevilla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×