Fótbolti

Ferguson: Ronaldo er nú fullmótaður knattspyrnumaður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, telur að Cristiano Ronaldo sé nú orðinn fullmótaður knattspyrnumaður eftir að hann fór frá félaginu árið 2009.

Ronaldo er nú á mála hjá Real Madrid þar sem hann hefur sýnt listir sínar sem einn allra besti knattspyrnumaður heims.

Ferguson sá Real Madrid spila nýverið gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu og hreifst þá mjög af frammistöðu Ronaldo.

„Með þroskanum öðlast einstaklingurinn margt. Sumar þær ákvarðanir sem hann tók í sínum sendingum voru framúrskarandi. Þetta voru góðar einna snertingar sendingar og góðar fyrirgjafir," sagði Ferguson.

„Ég fylgdist með honum vaxa og dafna í þau sex ár sem hann var hjá okkur - og hann var frábær leikmaður. Nú er hann fullmótaður leikmaður."

„Hann er skynsamur, reyndur og þroskaður auk þess að vera afar hæfileikaríkur," sagði Ferguson en United og Real Madrid mætast í 16-liða úrslitum keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×