Fótbolti

Villa verður ekki seldur frá Barcelona

David Villa.
David Villa.
Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, hefur tekið af allan vafa um framtíð framherjans David Villa. Hann verður ekki seldur frá Barcelona í janúar.

Búið er að orða leikmanninn við brottför frá Barcelona í marga mánuði enda ekki spilað mikið eftir að hann jafnaði sig á fótbroti.

"David mun ekki fara. Við erum mjög ánægðir með hann. Það hefur tekið hann langan tíma að jafna sig en við vitum hversu mikilvægur hann er fyrir liðið. Við efumst ekki um að hann muni hjálpa okkur," sagði Vilanova sem stýrði Barcelona um helgina en hann fór í krabbameinsaðgerð í síðasta mánuði.

Barcelona er búið að setja stigamet í spænsku deildinni eftir 19 umferðir. Liðið er með yfirburðastöðu og fátt sem getur komið í veg fyrir að liðið vinni spænsku deildina á nýjan leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×