Fótbolti

Ronaldo ætlar ekki að fara frá Madrid

Cristiano Ronaldo er orðinn þreyttur á endalausum sögusögnum um að hann sé á förum frá Real Madrid. Hann segist ætla að virða samning sinn við félagið.

Ronaldo er samningsbundinn Madridarliðinu til ársins 2015 og hann ætlar ekki að fara strax.

"Ég vil klára samning minn við félagið. Ég veit ekki hvað mun gerast eftir það. Í fullri hreinskilni er ég ánægður hjá félaginu. Ég er mjög sáttur," sagði Ronaldo en margir eru á því að hann sé ósáttur, líði illa og vilji komast burt.

Ronaldo er ekki ánægður með þá gagnrýni sem Jose Mourinho er að fá.

"Fólk mótmælir og ég virði það. Ég held samt að fólk megi sýna smá þolinmæði. Mourinho vill það besta fyrir félagið og hann mun verja það fram í rauðan dauðann."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×