Fótbolti

David Villa fær ekki að yfirgefa Barcelona

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Villa í leik með Barca í desember.
David Villa í leik með Barca í desember. Mynd. / Getty Images.
Orðrómur hefur verið á kreiki þess efnis að David Villa sé á leiðinni frá Barcelona til Arsenal núna í janúar þegar félagsskiptaglugginn er opinn.

Forráðamenn Barcelona hafa núna stigið fram og tilkynnt að Villa sé alls ekki á leiðinni frá Barca og verði án efa áfram hjá félaginu.

Spænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Tito Vilanova, knattspyrnustjóri Barcelona, hafi nú þegar tjáð David Villa að hann fari ekki frá Barcelona.

David Villa hefur ekki fengið að spreyta sig mikið á knattspyrnuvellinum að undanförnu auk þess hefur hann verið að glíma við meiðsli.

Villa hefur gefið það sterklega til kynna að hann vilji yfirgefa félagið en Barcelona virðist ekki reiðubúið að selja þennan snjalla framherja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×