Fótbolti

Ronaldo búinn að skora 174 mörk í 172 leikjum með Real

Ronaldo skorar eitt marka sinna í kvöld.
Ronaldo skorar eitt marka sinna í kvöld.
Real Madrid komst auðveldlega áfram í spænska konungsbikarnum í kvöld er liðið lagði Celta de Vigo, 4-0, á heimavelli. Cristiano Ronaldo skoraði þrennu í leiknum.

Mörk Ronaldo komu á 3., 24., og 88. mínútu. Ronaldo er nýbúinn að horfa upp á Lionel Messi vinna Gullboltann fjórða árið í röð og hann ætlar greinilega að gera harða atlögu að nafnbótinni í ár.

Sami Khedira skoraði fjórða markið sem Ronaldo lagði upp fyrir hann.

Árangur Ronaldo með Real Madrid er lyginni líkastur því hann er nú búinn að skora 174 mörk í 172 leikjum fyrir félagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×