Innlent

Fullyrða enn að minna gangi af makríl

makríll Fern samtök norskra útgerðarmanna skrifa undir tilkynningu sem hunsar niðurstöður hafrannsókna sem Norðmenn eru aðilar að.
fréttablaðið/óskar
makríll Fern samtök norskra útgerðarmanna skrifa undir tilkynningu sem hunsar niðurstöður hafrannsókna sem Norðmenn eru aðilar að. fréttablaðið/óskar fréttablaðið/óskar
Fulltrúar norskra og evrópskra útgerða funduðu með Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB, á mánudag til að undirbúa fund í makríldeilunni við Íslendinga 3. september. Þeir héldu því fram á fundinum með Damanaki að minna hefði gengið af makríl inn í íslensku lögsöguna en árið 2010 og 2011.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá útgerðunum og er vitnað til þess að rannsóknaleiðangrar sumarsins hafi leitt þetta í ljós. Niðurstaða sameiginlegs rannsóknaleiðangurs hafrannsóknastofnana Íslands, Noregs og Færeyja, sýnir hins vegar að aldrei hefur mælst meira af makríl í íslensku fiskveiðilögsögunni en í ár. Vekur athygli að niðurstöður norsku hafrannsóknastofnunarinnar, sem sýna að 1,5 milljón tonn mældust í ár í íslensku lögsögunni, séu virtar að vettugi í máli norskra útgerðarmanna, en árin 2010 og 2011 mældist 1,1 milljón tonn við landið.

„Það er auðvitað sorglegt að norskir og evrópskir útgerðarmenn skuli enn og aftur reyna að afvegaleiða umræðuna með þessum hætti," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.

Útgerðir í Noregi og ESB hafa krafist þess að fullri hörku verði beitt gegn Íslendingum og meðal annars verði viðræðum um aðild Íslands að ESB frestað.

Friðrik segir að hótun um frestun viðræðna haldi ekki vöku fyrir mönnum. „Verkefnið er sem fyrr að ná samkomulagi um stjórn veiðanna og tryggja sanngjarnan hlut Íslands í þeim," segir Friðrik. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×