Menning

Sýnir afrakstur Asíureisu á Skólavörðustíg

Baldur Kristjánsson ljósmyndari.
Baldur Kristjánsson ljósmyndari. Mynd/Anton Brink
„Að hafa sýninguna utandyra er í ætt við ferðalagið sjálft og gerir það líka að verkum að fleiri sjá myndirnar," segir ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson sem opnar ljósmyndasýninguna Austur fyrir fjall á göngugötu Skólavörðustígs í kvöld.

Sýningin er sú fyrsta sem Baldur heldur en hann hefur getið sér gott orð sem auglýsingaljósmyndari undanfarin ár. Á sýningunni eru fjörutíu ljósmyndir sem Baldur tók á bakpokaferðalagi sínu um Asíu fyrir tveimur árum. „Ég kalla þetta „umhverfisportrettmyndir" af fólki sem varð á vegi mínum í Nepal, Tíbet, Víetnam, Kambódíu og á Indlandi. Myndirnar sýna fólk í sínu náttúrulega umhverfi, eins og það kom mér fyrir sjónir," segir Baldur sem hefur látið sérsmíða sérstaka standa fyrir myndirnar svo þær njóti sín sem best í stórri upplausn.

„Ég pældi mjög mikið í staðsetningunni áður en ég fann þá réttu en ég er sjálfur að vinna á Skólavörðustíg og finnst hún án vafa vera ein skemmtilegasta gata bæjarins."

Sýningin verður opnuð í kvöld klukkan 20 og stendur til 19. ágúst. Baldur blæs til opnunarteitis á efri hæðinni á Sólon í tilefni dagsins. „Þessa stundina er ein mynd í uppáhaldi hjá mér en það er mynd sem ég tók á Killing Fields" í Kambódíu en þar voru framin hrottaleg fjöldamorð. Þar sá ég litla stelpu hinum megin við girðingu sem horfði inn á svæðið en ég náði að smella af einni mynd áður en hún lét sig hverfa. Þessi mynd situr eftir," segir Baldur.

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum?

„Myndirnar á sýningunni eru til sölu á baldurkristjans.is og jú, lengi lifi Þróttur." -áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.