Menning

Á fimm þúsund aðdáendur

Myndasagnahöfundurinn er kominn með tæplega fimm þúsund aðdáendur á Facebook.
Myndasagnahöfundurinn er kominn með tæplega fimm þúsund aðdáendur á Facebook. fréttablaðið/vilhelm
Myndasagnahöfundurinn Vignir Þór Þórhallsson, eða Flotti-Comics eins og hann kallar sig, er kominn með fimm þúsund aðdáendur á Facebook-síðu sína.

Þessi tvítugi piltur hefur samið myndasögur síðan hann var fimmtán ára. „Þegar ég var í grunnskóla leiddist mér stundum og þá byrjaði ég að teikna myndasögur," segir Vignir Þór, sem setti myndasögurnar inn á síðuna Hugi.is. Þar urðu þær vinsælar en núna einbeitir hann sér að eigin Facebook-síðu en einnig birtir hann kvikmyndatengdar sögur á síðunni Kvikmyndir.is.

Sögurnar hans eru bæði á ensku og íslensku, enda vill hann ná til fleira fólks með verkum sínum. „Ég hef verið að birta sögurnar stundum á 9gag.com sem er vinsæl grínsíða. Það hafa nokkrar komist á forsíðuna, sem er æðislegt því það er svo breiður áhorfendahópur þar."

Vignir Þór, sem ætlar að gefa út myndasögubók í nánustu framtíð, segir aðspurður að Hugleikur Dagsson sé í miklu uppáhaldi hjá sér. „Ég geri aðeins öðruvísi sögur en mér finnast sögurnar hans voða góðar. Það er mjög svartur húmor í þeim og hann þorir að fara langt yfir strikið." -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.