Sport

Góð uppskera hjá Jónu Guðlaugu um helgina

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóna Guðlaug (til hægri) ásamt liðsfélaga sínum í Sviss.
Jóna Guðlaug (til hægri) ásamt liðsfélaga sínum í Sviss. Mynd/Aðsend
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir spilaði tvo mikilvæga leiki með liði sínu VC Kanti Schaffhausen í Sviss um helgina. Báðir leikirnir unnust.

Á laugardaginn mættu Jóna og félagar Sm'Aesch Pfeffingen í Basel og kom ekkert annað en sigur til greina í baráttunni um efstu fimm sætin sem gefa þátttökurétt í fimm liða úrslitum. Schaffhausen vann öruggan sigur í þremur hrinum gegn engri.

Á sunnudaginn mætti Schaffhausen liði Sacres Nuc í bikarkeppninni en Sacres hafnaði í 2. sæti í efstu deildinni í fyrra. Schaffhausen vann sigur í hörkuleik 3-1 og tryggði sér sæti í undanúrslitum svissneska bikarsins.

„Þetta var hrikalega mikilvæg og erfið helgi. Við spiluðum mjög vel og það er mikil gleði hér á bæ í dag," sagði Jóna Guðlaug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×