Menning

Ragnari líkt við Agöthu Christie

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragnar Jónasson hefur lært mörg brögð af gamla snillingnum.
Ragnar Jónasson hefur lært mörg brögð af gamla snillingnum.
Umsjónarmaður bókmenntaþáttarins books@transglobal á þýsku útvarpsstöðinni TIDE fer fögrum orðum um siglfirsku glæpasöguna Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson og segir að rithöfundurinn Ragnar Jónasson græði á því að hafa þýtt fjórtán glæpasögur eftir Agöthu Christie yfir á íslensku. „Maður rekur augun í mörg brögð gamla snillingsins sem eykur bara ánægjuna við lesturinn," segir í bókadómi Jürgens Küssow. „Ragnar Jónasson hefur útbúið flókna fléttu og leggur hana fram með spennandi hætti. Við ættum að fylgjast með honum, en hann hefur burði til að kynna til leiks áhugaverða nýja persónu á vettvangi hinna vinsælu íslensku glæpasagna, lögreglumanninn Ara Þór," segir í dómnum.

Eins og áður hefur verið greint frá í Fréttablaðinu og hér á Vísi hefur Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari nýverið keypt kvikmyndaréttinn að Snjóblindu, með það fyrir augum að fara sjálfur með hlutverk lögreglumannsins Ara Þórs, og nú fyrir skömmu kom út ný spennusaga um Ara, Rof, sem gerist meðal annars í eyðifirðinum Héðinsfirði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.