Fótbolti

Mourinho óttast ekki að verða rekinn

Það er pressa á Mourinho.
Það er pressa á Mourinho.
Spænskir fjölmiðlar hafa gert því skóna að það sé gríðarleg pressa á Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, fyrir borgarslaginn um helgina. Hafa þeir jafnvel gengið svo langt að spá því að Mourinho verði rekinn takist liðinu ekki að vinna leikinn.

Eftir þrettán umferðir í spænsku deildinni er Real heilum ellefu stigum á eftir Barcelona og átta stigum á eftir Atletico Madrid sem er í öðru sæti.

"Samband mitt við leikmennina og stjórnina er nákvæmlega eins og það hefur alltaf verið. Ég er við góða heilsu og vinn nákvæmlega eins og áður," sagði Mourinho borubrattur.

Real tapaði aðeins tveimur leikjum á síðustu leiktíð en hefur þegar tapað þremur leikjum í vetur.

"Þetta er ekki réttarsalur heldur blaðamannafundur. Ég er bara starfsmaður félagsins og félagið ákveður hverjir koma og fara. Mitt samband við forsetann og stjórnina er eftir sem áður mjög gott."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×