Fótbolti

Mourinho launahæstur | Lippi og Ancelotti þéna meira en Ferguson

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mourinho við undirritun samningsins hjá Real Madrid.
Mourinho við undirritun samningsins hjá Real Madrid. Nordicphotos/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, er launahæsti stjóri heimsins ef marka má samantekt brasilíska viðskiptatímaritsins Pluri Consultoria.

Mourinho fær 15,3 milljónir evra í árslaun eða sem nemur um 2,5 milljörðum króna. Í öðru sæti kemur Carlo Ancelotti, stjóri PSG í Frakklandi, með um 2,2 milljarða króna í árslaun. Í þriðja sæti er landi hans, Ítalinn Marcello Lippi sem stýrir Guangzhou Evergrande í Kína, með 1,6 milljarða króna í árslaun.

Næstir á listanum eru Sir Alex Ferguson hjá Manchester United, Arsene Wenger hjá Arsenal, Guus Hiddink hjá Anzhi, Fabio Capello landsliðsþjálfari Rússa og Tito Vilanova stjóri Barcelona. Allir þéna þeir meira en einn milljarð króna á ári.

Listann í heild sinni má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×