Fótbolti

Iniesta: Ég hata ekki Pepe

Iniesta og Pepe.
Iniesta og Pepe.
Þeir Andres Iniesta hjá Barcelona og Pepe, varnarmaður Real Madrid, lentu í rifrildi í leik liðanna fyrr í vetur en Pepe er ekki óvanur því að standa í slíku.

Ljúfmennið Iniesta er þó ekki að gera neitt stórmál úr þessu rifrildi og virðist vera búinn að gleyma því.

"Við eigum alveg að geta verið vinir. Af hverju ekki," spurði Iniesta í viðtali.

"Á ákveðnum tímapunkti sagði ég mitt álit á honum. Mér líkaði ekki við hann en af hverju ekki núna? Ég hata hann ekki."

Pepe er einn umdeildasti leikmaður heims og mörgum finnst hann einfaldlega vera leiðinlegasti leikmaður heims um þessar mundir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×