Fótbolti

Messi skoraði tvö mörk í sigurleik

Barcelona er komið með sex stiga forskot á toppi spænsku deildarinnar eftir auðveldan 3-1 sigur á Real Zaragoza á heimavelli í kvöld.

Lionel Messi var líkt og venjulega yfirburðamaður á vellinum og skoraði tvö mörk. Alex Song komst einnig á blað.

Messi er nú búinn að skora 186 mörk í spænsku deildinni og er í níunda sæti yfir þá sem hafa skorað flest mörk í sögu deildarinnar.

Barcelona er þess utan ellefu stigum á undan Real Madrid sem á leik núna klukkan 21.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×