Fótbolti

Öruggt hjá Real Madrid

Benzema fagnar marki í kvöld.
Benzema fagnar marki í kvöld.
Real Madrid er átta stigum á eftir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni
Real Madrid er átta stigum á eftir Barcelona eftir

auðveldan og öruggan sigur á Athletic Bilbao í kvöld.

Margir héldu að Karim Benzema hefði skorað fyrsta mark

leiksins en því var síðan breytt í sjálfsmark. Benzema

virtist skjóta en það var varnarmaður sem kom boltanum

í netið.

Sergio Ramos skoraði næsta mark og Benzema gerði út um

leikinn með sínu öðru marki fyrir hlé. Real Madrid

hefur aldrei tapað þegar hann skorar nema gegn

Barcelona

Ibai Gomez klóraði í bakkann fyrir hlé en það hafði

ekkert að segja því Madridingar héldu áfram að lemja á

gestunum eftir hlé.

Þjóðverjarnir Özil og Khedira komust báðir á blað.

Fimmta markið var 150. markið sem Real skorar á

heimavelli síðan Jose Mourinho tók við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×