Messi: Við erum rólegir | Barcelona óskaði Celtic til hamingju Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2012 13:45 Lionel Messi í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Lionel Messi segir að leikmenn Barcelona hafi ekki áhyggjur þrátt fyrir óvænt tap fyrir Celtic í Meistaradeild Evrópu í gær. Celtic vann ótrúlegan 2-1 sigur á heimavelli þrátt fyrir að Barcelona hafi verið mun meira með boltann og sótt stíft. „Ég held að við náðum að gera allt vel. Við komum okkur í færi en boltinn vildi bara ekki fara inn," sagði Messi eftir leikinn í gær. „En við erum enn í fyrsta sæti í riðlinum og erum því nokkuð rólegir." „Þeim gekk vel að verjast og treystu á skyndisóknir og föst leikatriði. Þannig tókst þeim að skora tvö mörk." Xavi lofaði stuðningsmenn Celtic en stemningin á Parkhead var mjög góð. „Stemningin var ótrúleg - til fyrirmyndar," sagði hann en Barcelona óskaði Celtic til hamingju með sigurinn á Twitter-síðu liðsins. „Hamingjuóskir til @celticfc fyrir verðskuldaðan sigur, daginn eftir 125 ára afmæli félagsins," stóð í Twitter-færslu Barcelona.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Fleiri fréttir Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Sjá meira