Fótbolti

Anzhi lagði Liverpool

Byrjunarlið Liverpool í kvöld.
Byrjunarlið Liverpool í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Liverpool fór ekki neina frægðarför til Rússlands í dag því liðið tapaði, 1-0, gegn Anzhi Makhachkala í Evrópudeild UEFA. Það var Lacina Traore sem skoraði eina mark leiksins. Lyfti boltanum smekklega í netið.

Anzhi er þar með komið í toppsæti A-riðils keppninnar með sjö stig en Liverpool er með sex.

Leik Udinese og Young Boys er ekki lokið en Udinese getur komist í  sjö stig með sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×