Shakhtar-Brassarnir ekki nógu góðir fyrir landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2012 22:00 Leikmenn Shakhtar á móti Chelsea. Mynd/Nordic Photos/Getty
Mano Menezes, þjálfari brasilíska landsliðsins í fótbolta, hefur ekki mikla trú á löndum sínum sem spila með úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk í Meistaradeildinni. Menezes valdi engan þeirra í hópinn sinn fyrir vináttulandsleik á móti Kólumbíu sem fer fram í Bandaríkjunum í næsta mánuði. Hann valdi heldur ekki Ronaldinho en ætlar að gefa Kaka áfram tækifæri. Shakhtar er búið að vinna þrettán fyrstu leiki sína í úkraínsku deildinni og er að fara á kostum í Meistaradeildinni þar sem liðið vann Chelsea sannfærandi í síðustu umferð. Brasilíumennirnir Willian, Fernandinho, Alex Teixeira og Luiz Adriano eru í stórum hlutverkum hjá liðinu en enginn þeirra er nógu góður fyrir landsliðið sem er að undirbúa sig fyrir HM á heimavelli sumarið 2014. Alex Teixeira og Fernandinho skoruðu mörkin á móti Chelsea. Hulk, framherji hjá Zenit og Giuliano, miðjumaður hjá Dnipro Dnipropetrovsk, voru aftur á móti valdir í liðið. Það hefur lítið gengið hjá Kaka síðustu ár en hann átti góða endurkomu í landsliðið á dögunum. Kaka skoraði í bæði 6-0 sigri á Írak og 4-0 sigri á Japan í síðasta mánuði en það voru tveir fyrstu landsleikir hans í tvö ár.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira