Fótbolti

Zidane farinn frá Real Madrid

Hver veit hvar Zidane endar næst?
Hver veit hvar Zidane endar næst?
Franskir fjölmiðlar hafa greint frá því að lítill vinskapur sé á milli Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, og Zinedine Zidane, fyrrum leikmanns félagsins.

Zidane hefur verið að vinna fyrir félagið og það hefur að sögn ekki gengið átakalaust. Engu að síður segist Zidane hafa lært mikið af Portúgalanum.

"Ég er ekkert ósáttur við hann. Þvert á móti hef ég lært mikið af honum," sagði Zidane sem er hættur að vinna fyrir Madrid.

"Ég vil verða þjálfari og ég ákvað að fara til Frakklands til þess að ná því markmiði að geta staðið á hliðarlínunni um hverja helgi."

Zidane bíður því nú eftir rétta starfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×