Jordi Alba með sigurmark Barca í uppbótartíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2012 18:22 Mynd/AFP
Celtic kom á óvart með frábærri frammistöðu sinni á Nývangi í kvöld og var grátlega nálægt því að ná í stig út úr leiknum. Jordi Alba skoraði sigurmark Barcaelona á fjórðu mínútu í uppbótartíma og tryggði spænska liðinu nauman en sanngjarnan 2-1 sigur. Celtic-menn komu heimamönnum í opna skjöldu þegar þeir komust yfir á 18. mínútu leiksins en það var fyrsta alvöru sókn liðsins í leiknum. Javier Mascherano sendi þá boltann í eigið mark þegar Georgios Samaras skallaði boltann í ahnn eftir aukaspyrnu. Andrés Iniesta náði að jafna leikinn á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir frábæra sókn og sendingu frá Xavi. Lionel Messi, Xavi og Iniesta sundurspiluðu þá vörn Skotanna. Fraser Forster átti frábæran leik í marki Celtic og varði hvað eftir annað frábærlega þar á meðal tvisvar frá snillingnum Lionel Messi. David Villa var nálægt því að skora sigurmarkið á 90. mínútu en skot hans small þá í stönginni á marki Celtic. Það leit allt út fyrir jafntefli þegar Jordi Alba læddist inn á fjærstöngina og stýrði inn fyrirgjöf Adriano. Barcelona-menn fögnuðu gríðarlega en Skotarnir lágu niðurbrotnir í grasinu enda grátlega nálægt því að ná í stig.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira