Fótbolti

Ítölsku liðin steinlágu - úrslitin í Evrópudeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Dnipro fagna hér í kvöld.
Leikmenn Dnipro fagna hér í kvöld. Mynd/AFP
Spænska liðið Atletico Madrid, úkraínska liðið Dnipro og franska liðið Lyon eru öll með fullt hús stiga eftir að þriðju umferð riðlakeppni Evróudeildarinnar lauk í kvöld.

Atletico Madrid er á miklu skriði í deild og Evróukeppni en liðið er með fullt hús í B-riðli eftir 2-1 heimasigur á Académica Coimbra í kvöld.

Young Boys hjálpaði Liverpool að komast á toppinn í A-riðli með því að vinna óvæntan heimasigur á Udinese. Raúl Bobadilla skoraði öll mörk svissneska liðsins í kvöld.

Dnipro vann 3-1 sigur á Napoli og er með fimm stiga forskot á næsta lið í G-riðli. Napoli datt niður í 3. sætið og er bara með 3 stig.

Báðir leikirnir J-riðli enduðu með jafntefli eins og 4 af 6 leikjum riðilsins til þessa. Tottenham er búið að gera jafntefli í öllum sínum leikjum og er því tveimur stigum á eftir toppliði Lazio og einu stigi á eftir Maribor sem í 2. sætinu.

Genk lenti undir á móti Sporting en tryggði sér 2-1 sigur á toppsætið í F-riðlinum. Videoton vann Basel á sama tíma og er í 2. sætinu með 6 stig eða fjórum meira en svissneska liðið.

Lyon er áfram með fullt hús í I-riðli eftir 2-1 sigur á Athletic Bilbao en spænska liðið hefur aðeins náð í eitt stig út úr fyrstu þremur leikjunum.

Rubin Kazan og Inter Milan unnu bæði nauma 1-0 sigra á heimavelli og eru í góðum málum með 7 stig í efstu tveimur sætum H-riðilsins en hin riðilsins eru bæði með eitt stig.

Bayer Leverkusen og Metalist Kharkiv unnu bæði í kvöld og eru með 7 stig og fjögurra stiga forskot á næstu lið í K-riðli. Rosenborg komst yfir á móti Metalist Kharkiv en úkraínska liðið tryggði sér sigur með tveimur mörkum í lokin.

Hannover og Levante eru bæði í fínum málum í L-riðli eftir sigra í kvöld en spænska liðið vann 3-0 sigur á Twente á heimavelli.

Úrslit og markaskorarar í 17:00 leikjunumF-riðill

Genk - Sporting 2-1

0-1 Stijn Schaars (7.), 1-1 Benjamin De Ceulaer (25.), 2-1 Elyaniv Barda (88.)

Videoton FC - Basel 2-1

1-0 Nemanja Nikolic (2.), 2-0 Marco Caneira (32.), 2-1 Fabian Schär (90.)

H-riðill

Rubin Kazan - Neftchi Baku 1-0

1-0 Alan Kasaev (16.)

Inter - Partizan Beograd 1-0

1-0 Rodrigo Palacio (88.)

I-riðill

Lyon - Athletic Bilbao 2-1

1-0 Lisandro López (54.), 1-1 Ibai Gómez (79.), 2-1 Jimmy Briand (86.)

Sparta Praha - Ironi Kiryat Shmona 3-1

1-0 Ladislav Krejci (7.), 2-0 Vaclav Kadlec (10.), 3-0 Ondrej Svejdik (44.), 3-1 Shimon Abuhatzira (76.)

J-riðill

Maribor - Tottenham 1-1

1-0 Robert Beric (41.), 1-1 Gylfi Þór Sigurðsson (58.)

Panathinaikos - Lazio 1-1

0-1 Sjálfsmark (25.), 1-1 Toché Verdú (90.)

K-riðill

Rosenborg - Metalist Kharkiv 1-2

1-0 Tarik Elyounoussi (46.), 1-1 Marlos (80.), 1-2 Cleiton Xavier (89.)

Rapid Wien - Bayer Leverkusen 0-4

0-1 Philipp Wollscheid (37.), 0-2 Gonzalo Castro (57.), 0-3 Karim Bellarabi (58.), 0-4 Gonzalo Castro (90.)

L-riðill

Helsingborg - Hannover 1-2

0-1 Mame Biram Diouf (12.), 1-1 Alvaro (90.+1), 1-2 Didier Ya Konan (90.+3)

Levante - Twente 3-0

1-0 Míchel (59.), 2-0 Pedro Ríos (78.), 3-0 Pedro Ríos (88.)

Úrslit og markaskorarar í kvöldleikjunum:A-riðill

Liverpool - Anzhi 1-0

1-0 Stewart Downing (53.)

Young Boys - Udinese 3-1

1-0 Raúl Bobadilla (4.), 2-0 Raúl Bobadilla (71.), 2-1 Andrea Coda (74.), 3-1 Raúl Bobadilla (81.)

B-riðill

Atlético Madrid - Académica Coimbra 2-1

1-0 Diego Costa (48.), 2-0 Emre (67.), 2-1 Salim Cisse (85.)

Hapoel Tel Aviv - Viktoria Plzen 1-2

1-0 Hanan Maman (19.), 1-1 Pavel Horvath (45.), 1-2 Frantisek Rajtoral (55.)

C-riðill

AEL Limassol - Fenerbahçe 0-1

0-1 Egemen Korkmaz (72.)

Borussia M'gladbach - Marseille 2-0

1-0 Filip Daems (33.), 2-0 Peniel Mlapa (67.)

D-riðill

Marítimo - Bordeaux 1-1

0-1 Yoan Gouffran (30.), 1-1 Valentin Roberge (36.)

Newcastle - Club Brugge 1-0

1-0 Gabriel Obertan (48.)

E-riðill

Steaua Bucuresti - Molde 2-0

1-0 Vlad Chiriches (30.), 2-0 Raul Rusescu (32.)

Stuttgart - FC København 0-0

G-riðill

Dnipro - Napoli 3-1

1-0 Artem Fedetskiy (2.), 2-0 Matheus (42.), 3-0 Giuliano (64.), 3-1 Édinson Cavani (75.)

PSV - AIK 1-1

0-1 Kwame Amponsah Karikari (61.), 1-1 Jeremain Lens (80.)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×