Fótbolti

Real Madrid slátraði Mallorca

SÁP skrifar
Real Madrid vann fínan sigur, 5-0, á Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn fór fram á Iberostar-vellinum í Mallorca.

Gonzalo Higuaín kom gestunum yfir þegar tæplega tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Það var síðan stórstjarnan Cristiano Ronaldo sem skoraði annað mark leiksins þegar rúmlega tuttugu mínútur voru liðnar af hálfleiknum.

Staðan var því 2-0 í hálfleik. Á 70. mínútu var Gonzalo Higuaín aftur á ferðinni þegar hann skoraði annað mark sitt í leiknum og aðeins þrem mínútum síðar gerði Cristiano Ronaldo einnig annað mark sitt í leiknum og staðan orðin 4-0 fyrir gestina.

Þegar venjulegur leiktími var liðin náðu Real Madrid að skora fimmta markið í leiknum en þar var að verki José Callejón.

Leiknum lauk því með öruggum sigri Real Madrid og var sigur þeirra aldrei í hættu eins og tölurnar gefa til kynna. Real Madrid er í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig, átta stigum á eftir Barcelona sem er í efsta sætinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×